Hafa samband
„Það er heldur betur hlaupin snurða á þráðinn, heillin mín“.

Forsíða

Búðin

Þingborgarhópurinn

Ullin

Hönnuðir

Stærsta peysa heims

Árið 1994 var hafist handa um að prjóna það, sem átti eftir að verða stærsta peysa heims.

Samanlagt munu 50 konur úr Þingborgarhópnum og frá Ullarselinu hafa unnið í 18 sólarhringa að peysunni.

Peysan hefur verið viðurkennd af heimsmetaskrá Guinness.

Peysunni var lokið í júlí 1996. 47 manns, konur og karlar komu að gerð hennar. Hún er öll gerð úr handspunnu bandi, 179 prjónuðum bútum og saumuð saman með svörtu. Peysan er 25 fermetrar og jafnast á við 17 karlmannspeysur. Ermalengdin er 1.85 metrar. Síddin er 3 metrar. Fimmtán ullarreyfi hefðu farið í peysuna. Hún vegur 16.5 kg.

 

Þingborg ullarvinnsla || Við hringveginn 8 km fyrir austan Selfoss || símar: 482-1027 og 693-6509 || netfang: thingborg@simnet.is