Hafa samband
„Það er heldur betur hlaupin snurða á þráðinn, heillin mín“.

Forsíða

Búðin

Þingborgarhópurinn

Ullin

Hönnuðir

Opna húsið á fimmtudögum

Í 16 ár hafa Þingborgarkonur haft opið hús og hist á fimmtudagseftirmiðdögum í Þingborgarhúsinu. Þar hafa þær unnið saman og gefið góð ráð gestum og gangandi eða þegið fræðslu frá öðrum.

Fyrir utan námskeið og vinnufundi er margt til skemmtunar. Í byrjun aðventunnar er sungin Gilsbakkaþulan og stigið vikivakaspor við undirleik Inga Heiðmars Jónssonar og er sú skemmtun öllum opin. Ferðir eru farnar og oft hafa þær tilgang svo sem að safna jurtum, fræðast, safna ull eða velja ull, taka þátt í samkeppnum eða fara á markaði í öðrum sveitarfélögum. Hefbundnar grillveislur til að fagna ýmsum áföngum eru líka haldnar.

Þingborg ullarvinnsla || Við hringveginn 8 km fyrir austan Selfoss || símar: 482-1027 og 693-6509 || netfang: thingborg@simnet.is