Hafa samband
„Það er heldur betur hlaupin snurða á þráðinn, heillin mín“.

Forsíða

Búðin

Þingborgarhópurinn

Ullin

Hönnuðir

Verslunarmannahelgin

Opið laugardag og sunnudag 13 - 17. Lokað mánudag.

8. - 18. maí

Vor í Árborg - Opið í Ullarkjallara Dóru að Birkivöllum 6 á Selfossi virka daga 18 - 21 og helgar 16 - 19.

7. maí

Nú hefur verið sett upp vorsýning í anddyri Þingborgar sem fjallar um fatnað á Þjóðveldisöld.
Samhliða henni standa yfir námskeið í gerð slíks fatnaðar. Sýningin er liður í Fjöri í Flóanum og er í beinu framhaldi af námsstefnu um víkingafatnað sem haldin var í fyrravor.
Einnig er Þingborg í samvinnu við Skeiða- og Gnúpverja-hrepp sem ætlar nú að endurvekja landnámsdaginn í
víkingaskálanum í Þjórsárdal þann 31. maí.

1. apríl 2008

 

Þæfingarnámskeið

í Þingborg laugardaginn 5. apríl
Upplýsingar og skráning í s. 482-1027 og 693-6509

26. mars 2008

Vefsíðan er nú langt komin. Þó viljum við biðja gesti að senda okkur athugasemdir og hugmyndir á netfangið okkar thingborg@simnet.is

15. mars 2008

 

Nýtt í búðinni!

Saltsteinslampar og Sonett hreinlætisvörur sem eru 100% lífrænar (100% niðurbrot).

Sýning á prjónuðum smokkum og handskjólum er í anddyri Þingborgar og öllum velkomið að bæta sínum við safnið. Sýningin verður uppi fram í apríl. Hægt er að koma og skoða og líkja eftir eða fá hugmyndir.

Spennandi námskeið í peysuhönnun var í febrúar. Sjá nánar í húsinu.

Peysusamkeppni:

Unnið verður úr lopa eða handspunnu bandi en peysan höfð einlit. Leitast verður eftir að ná sambandi við sem flesta vítt um land. Auglýst nánar síðar.

Á aðventunni var sett upp í fordyri hússins sýning á englum sem fólk hafði komið með heiman að frá sér. Hugmyndin var sú að englarnir væru í samfélagi á aðventunni og kringum jólin, hittust og bæru saman ráð sín. Síðan fóru þeir hver til síns heima og vinna þar að góðum málum uns þeir hittast á ný á næstu adventu.

Opnunartímar verslunarinnar

Opið þri., miðvd. og föstud kl. 11-16 og
fimmtudaga kl. 11-17.30.
Fjör í Flóanum Opið sunnudaginn 1. júní frá 13 - 17
Opið hús alla fimmtudaga kaffi á könnunni og mikið fjör. Nýliðar eru alltaf velkomnir til að hitta aðra og grípa í verk.
Aðra daga er opið meðan verið er að vinna við kembivélina.
Leitið upplýsinga í símum 482 1027 og 693 6509
Prjónakaffi er 3ja laugardag hvers mánaðar. Þá er verslunin opin 11-16.

Í júlí verður opið alla daga kl. 11-17.30

Tekið er á móti hópum þegar þess er óskað og þeim sýnd vinnubrögð og minni hópar geta fengið að snerta á ullinni og spreyta sig á vinnubrögðum.

Þingborg ullarvinnsla || Við hringveginn 8 km fyrir austan Selfoss || símar: 482-1027 og 693-6509 || netfang: thingborg@simnet.is