Hafa samband
„Það er heldur betur hlaupin snurða á þráðinn, heillin mín“.

Forsíða

Búðin

Þingborgarhópurinn

Ullin

Hönnuðir

Kembur og lyppur

Breidd á kembum er 40 cm og lengd u.þ.b. 2 metrar. Þykkt og þyngd kembanna getur verið mismunandi.
Hægt er að samkemba liti og ólík hráefni í kembivélinni og fá þannig ýmis tilbrigði í kemburnar.

Lyppur eru þykkar lopalengjur sem eru tilbúnar fyrir handspuna og einnig góðar í smærri flókastykki. Lyppurnar eru sívalningar í rúllu og þægilegt að spinna beint úr þeim.

Verð pr. kíló

  • sauðalitir kr. 3.470
  • blandaðir sauðalitir kr. 3.864
  • sauðalitir með litum - marmari kr. 4.950
  • sauðalitir með fiðu(kanínuull) - marmari kr. 5.435
  • sýrulitað kr. 5.150
  • skrautlyppur kr. 5.675
  • Skólar og handverkshópar fá 10% afslátt.

Þingborg ullarvinnsla || Við hringveginn 8 km fyrir austan Selfoss || símar: 482-1027 og 693-6509 || netfang: thingborg@simnet.is