Þæfing hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. Oftast er þæft úr lausri ull með sápu og heitu vatni en stundum eru prjónavörur þæfðar eða ofin stykki eins og siður var áður fyrr. Alls konar form og hlutir eins og töskur, treflar, hettur, húfur, vettlingar og veggstykki henta til þæfingar.
Marian Gierman þæfði kindina með lambinu og Dóra Óskarsdóttir þæfði trefilinn.
Kembur og lyppur
Kembd ull í breiðum og lengjum í ýmsum litum til þæfingar fást í versluninni.
Mottur og nálar til þæfingar
Vegna hinna mörgu þæfingarnámskeiða sem haldin hafa verið í húsinu og af meðlimum hópsins hafa verið útbúnir sérstakir pakkar með plastmottum og grisju í tveimur stærðum. Einnig eru til sölu sérstakar þæfingarnálar.
Þingborg ullarvinnsla || Við hringveginn 8 km fyrir austan Selfoss || símar: 482-1027 og 693-6509 || netfang: thingborg@simnet.is