Hafa samband
„Það er heldur betur hlaupin snurða á þráðinn, heillin mín“.

Forsíða

Búðin

Þingborgarhópurinn

Ullin

Hönnuðir

Handhægar uppskriftir

Sokkar með Halldóruhæl í 5 stærðum.

Von á þessum síðar:

Vettlingauppskrift Öldu í grunnhlutföllum.
Smokkar Höddu með perlum.
Barnahúfa með eyrnaskjólum.

Lopasokkar með Halldóruhæl

Þríþættur plötulopi, tvinnað band eða einfaldur lopi og band undið saman.

Prjónastærð nr. 4 ½ og 5. Fimm stærðir.

Fitjaðir eru upp laust á fjóra prjóna. 5-6-7-8-9 lykkjur á hvern prjón. Prjónaðir brugðningar, 2 sléttar og 2 brugðnar, jafnmargar umferðir og fitjaðar voru á alla prjónana eða 20-24-28-32-36 umferðir. Þá er prjónað slétt prjón í hring, jafnmargar umferðir og lykkjur eru á prjóni eða 5-6-7-8-9 umferðir. Næst er hælstallur prjónaður, helmingur lykkjanna færður saman á einn prjón og prjónað fram og til baka 10-12-14-16-18 umferðir með steypulykkju á jöðrum, þ.e. fyrsta lykkja tekin óprjónuð. Jaðarlykkjur verða þá jafnmargar og lykkjufjöldi á prjóni.

“Gætið þess, að jaðarlykkjurnar sjeu fallegar steypilykkjur,ekki lausar” stendur í gömlu uppskriftinni og er einnig lögð sérstök áhersla á það hér. Hællinn á leistunum er sá sem víða um land gengur undir nafninu “Halldóruhæll”, kenndur við Halldór Bjarnadóttur sem vafalaust hefur verið ötul við að kenna hann, þegar hún ferðaðist um sem himilisiðnaðarráðunautur, í staðinn fyrir totuhælinn(prjónaður eins og tátota) sem áður mun hafa verið algengastur.

Hællinn er prjónaður áfram á tvo prjóna, tekið úr báðum megin við beina tungu sem gengur fram undir ilina. Byrjað er í brugðinni umferð.Prjónaðar eru 1-1-2-2-2 lykkjurfram yfir myðju, þá eru 2 brugðnar saman og snúið við. Fyrsta lykkjan tekin óprjónuð og prjónaðar 2-2-4-4-4 sléttar, 2 saman sléttar ( lykkjan tungumegin ofan á ), fyrsta lykkja tekin óprjónuð, prjónaðar 2-2-3-3-3 brugðnar, súið við o.s.fr. Hæltunganprjónuð áfram á þennan hátt þar til eftir standa 4-4-6-6-6 lykkjur, endað á séttum prjóni. Við jaðra hælstallsins eru nú teknar upp 5-6-7-8-9 lykkjur hvorum megin og þegar lykkjum í tungu hefur verið skipt í tvennt eru 7-8-10-11-12 lykkjur á hvorum prjóni á il, en á ristarprjónum eru áfram 5-6-7-8-9lykkjur. Prjónuð er ein umferð, síðan eru teknar úr umframlykkjur á il þannig: Umferðin byrja á miðri il, á fyrsta prjóni eru 2 síðustu lykkjur prjónaðar saman, á fjórða prjóni eru fyrst 2 lykkjur prjónaðar saman ( steypiúrtaka). Ein umferð prjónuð á milli úrtaka. Eftir úrtökuumferðir eru aftur 5-6-7-8-9- lykkjur á öllum prjónum og framleisturinn prjónaður áfram að úrtöku við tá.

Prjónaðar eru 20-24-28-32-36 umferðir, talið frá hælstalli. Gömul og góð aðferð við sokkaprjón er mæla á á il, til þess að fá ilina heldur lengri en ristina. Það er gert þannig að snúið er við eftir seinni prjón.

Þingborg ullarvinnsla || Við hringveginn 8 km fyrir austan Selfoss || símar: 482-1027 og 693-6509 || netfang: thingborg@simnet.is